
4000K LED yfirhöfuð
Hlutlaus hvít birta sem gefur náttúrulega húðtóna í myndsímtölum. Stillanleg birta í þremur þrepum.
ISO 23351-1 vottuð hljóðvist. Til á lager í þremur útfærslum og tveimur litum. Ókeypis afhending á höfuðborgarsvæðinu.
Þrjár útfærslur, tveir litir, þrjár söluleiðir. Verð uppfærist sjálfkrafa.
Loftgæði, birtuskilyrði og þægindi eins og best verður á kosið.

Hlutlaus hvít birta sem gefur náttúrulega húðtóna í myndsímtölum. Stillanleg birta í þremur þrepum.

Tveir hljóðdempaðir blásarar skipta út lofti á tveggja mínútna fresti. Þeir eru nánast hljóðlausir.

Sjálfvirk merking þegar klefinn er í notkun sem er sjáanlegt utan frá án þess að þú sjáir hana að innan.

Allt sem þú þarft í handarhæð. Allar stillingar í einu stjórnborði ásamt 220V og 65W USB-C hleðslutengi.

Ljós og loftræsting kvikna sjálfkrafa við innkomu og slökkva á sér aftur þegar rýmið tæmist.

Hjólabúnaður auðveldar flutning milli rýma og stillanlegir fætur fyrir ójafnt gólf.
Hæsta einkunnin í nýja alþjóðlega staðlinum fyrir hljóðvist næðisrýma. Mælt af óháðri rannsóknarstofu og vottað af TÜV SÜD.
Veggur Zenden One er 78 mm þykkur. Hvert lag á sér tilgang. Saman gefa þau þér Class A hljóðvist án þess að rýmið verði þungt eða lokað.

Hvort ertu fyrir eða ?


Gler á tveimur hliðum. Sést bæði inn og út úr klefanum.


Bakhlið úr sama efni og veggurinn. Gler aðeins á framhlið.


Glerið dimmist með einum takka. Opið rými þegar þú þarft, lokað þegar þú þarft.
Stólar, hillur og smáatriði til að klára rýmið. Allt á lager. Bætið við í pöntun.

Svartur stóll með stillanlegri hæð 60–80 cm
22.900 kr.

Grár stóll með stillanlegri hæð 44–58 cm · 240 mm bakstoð.
22.900 kr.

Með hillu, geymsluboxi og fylgihlutum
31.900 kr.

858 × 350 × 1980 mm
42.900 kr.

400 × 400 × 1980 mm
34.900 kr.

1200 × 450 × 2223 mm
44.900 kr.
Veldu útfærslu, lit og stól. Greitt með korti eða rafrænum reikningi.
Pantanir fyrir kl. 14 á virkum dögum eru pakkaðar samdægurs.
Tveir starfsmenn afhenda á höfuðborgarsvæðinu, innan sólarhrings frá greiðslu.
Klefinn settur upp á staðnum og farið yfir helstu stillingar.
Afhending er innan sólarhrings frá greiðslu. Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl. 14 á virkum dögum eru afhentar samdægurs; aðrar pantanir afhendast næsta virka dag. Afhending utan höfuðborgarsvæðisins er sérpöntuð og verðlögð sérstaklega.
Tveir starfsmenn frá Zenden samsetja klefann hjá þér á um 40 mínútum. Innifalið í verðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Klefinn þarf flatt undirlag, 220V tengingu í 1,5 metra fjarlægð og að lágmarki 50 cm laust pláss umhverfis fyrir loftræstinguna. Stillanlegir fætur þola ójafnt undirlag að vissu marki.
Já. Mánaðarleg leiga (Zenden Leiga) er í boði frá 1 mánuði. Verðið lækkar með lengri leigutíma og afar auðvelt er að sjá verðið hérna á síðunni.
Zenden One er prófaður samkvæmt ISO 23351-1:2020 staðlinum af óháðri rannsóknarstofu og vottaður af TÜV SÜD. Mældur dB-vísir er 30,4 dB sem jafngildir Class A, hæstu einkunn í staðlinum.
Tveggja ára ábyrgð gegn framleiðslugöllum frá afhendingu.
Já. Þú getur valið milli kortagreiðslu (afhent samdægurs) og rafræns reiknings með kröfu í heimabanka (afhent næsta virka dag eftir greiðslu). Báðar leiðir í gegnum vefinn.
Það er afar auðvelt að láta filma hliðarnar en hægt er að óska eftir tilboði í slíkt.
Afhending innan sólarhrings frá greiðslu á höfuðborgarsvæðinu.