Fundarklefar án
óþarfa milliliða.
Zenden varð til með einfalt markmið í huga: að bjóða íslenskum fyrirtækjum hágæða fundarklefa á sanngjarnara verði með einfaldara kaup- og leiguferli.

Hvernig Zenden
varð til.
Hugmyndin að Zenden kviknaði eftir að við sáum að fundarklefar á Íslandi voru oft óþarflega dýrir og erfitt að nálgast skýrar upplýsingar um verð, afhendingu og uppsetningu.
Markmiðið frá byrjun var einfalt: að gera fyrirtækjum auðveldara að bæta vinnuaðstöðu sína með hágæða fundarklefum á sanngjarnara verði.
Til að finna réttu lausnina ferðaðist Steinar Atli Skarphéðinsson til Kína þar sem hann eyddi rúmum mánuði í að heimsækja framleiðendur í sex mismunandi borgum og bera saman gæði, hljóðvist, efnisval og framleiðsluferli.
Eftir umfangsmikið valferli var ákveðið að vinna með Loctek sem framleiðsluaðila fyrir Zenden fundarklefana.
Í dag býður Zenden upp á bæði kaup og leigu á fundarklefum fyrir fyrirtæki sem vilja bæta hljóðvist, einbeitingu og fundaraðstöðu án þess að fara í kostnaðarsamar framkvæmdir.
Á zenden.is er hægt að sjá verð samstundis, ganga frá kaupum eða leigu á netinu og fá rafrænan reikning sendan beint í heimabanka.
Einfaldara gæti það varla verið.
Traustur
framleiðsluaðili.
Zenden vinnur með Loctek sem framleiðsluaðila fundarklefanna.
Loctek er leiðandi framleiðandi á ergonomic workspace lausnum og rafmagnshækkanlegum skrifborðum með höfuðstöðvar í Ningbo í Kína.
Fyrirtækið var stofnað árið 2002, er skráð á hlutabréfamarkað í Kína og hjá því starfa yfir 4.000 manns.
Loctek rekur eigin framleiðsluverksmiðjur og framleiðir workspace lausnir fyrir alþjóðlega markaði með áherslu á gæði, framleiðslugetu og stöðuga vöruþróun.
Fundarklefarnir eru framleiddir fyrir Zenden og aðlagaðir að okkar útfærslu og vörumerki fyrir íslenskan markað.
Með samstarfinu sameinar Zenden alþjóðlega framleiðslugetu og íslenska þjónustu, ráðgjöf og afhendingu.

Vottanir og gæðastaðlar.
Zenden fundarklefarnir eru framleiddir samkvæmt alþjóðlegum gæðastöðlum og framleiðslan er með ISO vottanir.
Skoða ISO vottorðLandic ehf.
Landic var stofnað 2024 af Steinari Atla Skarphéðinssyni eftir tólf ára feril í hugbúnaðargerð og innflutningi. Markmiðið er einfalt: koma vönduðum næðisrýmum á íslenskan markað, með afhendingu og þjónustu sem stenst innlend viðmið.
Næstu klefar.
- Q2 2026Zenden Popup: léttari klefi fyrir skammtímaleigu og viðburði.
- Q4 2026Zenden Four / Six: fundarherbergi á hjólum með Class A hljóðvist.
Spurningar?
Heimsókn?
Hringdu, skrifaðu eða komdu við í Kópavogi.