Sleppa yfir í aðalefni
Zenden · Duo

Næði fyrir tvo
hvar sem er

Fundarklefi fyrir tvo sem má fella saman og flytja milli rýma. Ein útfærsla í hvítu, til á lager í Kópavogi. Afhentur og reistur af okkur innan sólarhrings frá greiðslu á höfuðborgarsvæðinu.

Til á lager
Skrunaðu
Verð

Ein útfærsla, eitt verð

Zenden Duo kemur í hvítu með lýsingu, loftræstingu, hleðslutengjum og rafmagnslyftu innifalinni. Allt sem þarf fylgir með.

Á lagerZD2-DUO-HV
Hvítur · hurð lokuð
Hvítur · hurð opin
Innra · stjórnborð
Innra · borðplata
Innra · loft
01 / 05
Hvítur · hurð lokuð
Zenden Duo
ZD2-DUO-HV
Rúmar
Tvo
Litur
Hvítur
Ytra mál (B×D×H)
150 × 102 × 224 cm
Innra mál (B×D×H)
136 × 95 × 204 cm
Hljóðvist
25 dB · uppgefið af framleiðanda
Afhending
Innan sólarhrings á virkum dögum, höfuðborgar­svæðið
Flutningur
25.000 kr án VSK á höfuðborgar­svæðinu
Uppsetning
35.000 kr án VSK, valfrjáls · um 50 mín
Ábyrgð
2 ár
Innifalið
Lýsing, loftræsting, hleðslutengi, rafmagnslyfta
UppsetningZenden setur upp
895.000 kr
Án VSK
+ flutningur 25.000 kr · uppsetning 35.000 kr · höfuðborgarsvæðið
1.184.200 kr
samtals með VSK og gjöldum
Pantaðu núna→
SamanbrjótanlegurVeggirnir felldir niður og klefinn fluttur milli rýma.
RafmagnslyftaLyftir þakinu og reisir klefann, engin verkfæri.
2 ára ábyrgðGegn framleiðslugöllum.
Reistur af okkurStarfsfólk Zenden reisir klefann á höfuðborgarsvæðinu: 35.000 kr án VSK, eða þú reisir hann sjálfur.
Hönnun

Allt innbyggt
og innan seilingar

Lýsing, loftræsting, hleðslutengi og skynjari eru innbyggð og tilbúin um leið og klefinn er reistur.

Innfellt LED-ljós í lofti klefans
01 · Lýsing

LED-loftljós

Hlutlaus hvít birta sem gefur náttúrulega húðtóna í myndsímtölum.

18 W · 4.000 K · IP20
Loftræstirist í lofti klefans
02 · Loftræsting

Hljóðlát loftræsting

Blásari skiptir út lofti jafnt og þétt á meðan klefinn er í notkun.

146 m³/klst · 750 sn/mín · 3 W
Rautt viðveruljós efst á klefanum, sýnilegt utan frá
03 · Viðvera

Viðveruljós

Sýnir utan frá að klefinn sé í notkun, án þess að trufla þann sem er inni.

7 W · 30.000 klst
Stjórnborð með innstungu, USB-A og USB-C
04 · Tengi

Rafmagn og hraðhleðsla

Innstunga, USB-A og USB-C með 65 W hraðhleðslu, allt í handarhæð.

Innstunga · USB-A · USB-C 65 W
Hreyfiskynjari á vegg klefans
05 · Skynjari

Hreyfiskynjari

Ljós og loftræsting kvikna við innkomu og slökkva á sér þegar rýmið tæmist.

PIR · sjálfvirk kveiking
Þakið rís þegar lyftibúnaðurinn reisir klefann
06 · Lyftikerfi

Rafmagnslyfta

Mótor lyftir þakinu og veggirnir eru felldir á sinn stað. Engin verkfæri.

100–240 V · 50–60 Hz
Samanbrot

Felldur saman, fluttur, reistur aftur

Veggirnir eru felldir niður með einföldum hætti og klefinn verður flatur: hann kemst um venjulegar dyr, í lyftu og í geymslu. Á nýja staðnum lyftir rafmagnslyftan þakinu og klefinn er reistur aftur.

  1. Zenden Duo samanbrotinn og flatur01

    Samanbrotinn

    Flatur kemst hann um venjulegar dyr, í lyftu og í geymslu.

  2. Rafmagnslyftan lyftir þaki Zenden Duo02

    Rafmagnslyftan lyftir þakinu

    Engin verkfæri. Þú gerir þetta sjálfur eftir fyrstu uppsetningu.

  3. Veggir Zenden Duo felldir á sinn stað03

    Veggirnir felldir á sinn stað

    Hljóðdempandi veggplötur úr MDF, hurð úr hertu öryggisgleri.

  4. Zenden Duo fullreistur og tilbúinn til notkunar04

    Tilbúinn fyrir tvo

    Hurðinni lokað, ljós og loftræsting fara í gang.

Ytra mál (B×D×H)
150 × 102 × 224 cm
Innra mál (B×D×H)
136 × 95 × 204 cm
Uppsetning
35.000 kr án VSK, valfrjáls · um 50 mín
Hljóðvist
25 dB · uppgefið af framleiðanda
Afhending

Frá pöntun að fundi

01 · skref

Þú pantar

Greitt með korti eða rafrænum reikningi.

0 mín
02 · skref

Afhentur samanbrotinn

Klefinn kemur flatur innan sólarhrings frá greiðslu og kemst um venjulegar dyr og inn í lyftu. Flutningur 25.000 kr án VSK á höfuðborgarsvæðinu.

Innan sólarhrings
03 · skref

Reistur af okkur

Starfsfólk Zenden reisir klefann með rafmagnslyftunni fyrir 35.000 kr án VSK á höfuðborgarsvæðinu, eða þú reisir hann sjálfur.

Um 50 mín · 35.000 kr
04 · skref

Felldur saman þegar þarf

Þú fellir veggina niður sjálfur þegar rýmið á að nýtast í annað og reisir klefann aftur þegar þarf. Engin verkfæri.

Eins oft og þarf
Algengar spurningar

Spurt og svarað

Veggirnir eru felldir niður með einföldum hætti og klefinn verður flatur; það gerir þú sjálfur og engin verkfæri þarf. Þannig kemst hann um venjulegar dyr, í lyftu og í geymslu. Á nýjum stað lyftir rafmagnslyftan þakinu og veggirnir eru felldir á sinn stað.

Duo er fyrir tvo og hentar þar sem klefinn þarf að færast milli rýma: í ráðstefnusölum, sýningarrýmum og á vinnustöðum sem endurraða reglulega. Zenden One er eins manns klefi sem stendur á sínum stað og er með hljóðvist í Class A.

Uppgefin talhljóðslækkun er 25 dB samkvæmt ISO 23351-1. Sú tala kemur frá framleiðanda en ekki frá óháðri rannsóknarstofu, og við birtum hana því sem tölu framleiðanda. Zenden One er aftur á móti mældur af óháðri rannsóknarstofu og vottaður í Class A.

Um 50 mínútur. Starfsfólk Zenden reisir klefann við afhendingu ef þú velur það í stillinum, 35.000 kr án VSK á höfuðborgarsvæðinu; annars reisir þú hann sjálfur eftir leiðbeiningum. Eftir það getur þú fellt hann saman og reist aftur eins oft og þarf, engin verkfæri; rafmagnslyftan lyftir þakinu.

Innan sólarhrings frá greiðslu á virkum dögum á höfuðborgarsvæðinu; flutningur kostar 25.000 kr án VSK. Afhending utan höfuðborgarsvæðisins er verðlögð sérstaklega.

Ytri mál eru 150 cm á breidd, 102 cm á dýpt og 224 cm á hæð; gólfflöturinn er um 1,5 m². Innra rýmið er 136 cm á breidd, 95 cm á dýpt og 204 cm á hæð. Samanbrotinn kemst hann um venjulegar dyr og í lyftu. Klefinn þarf flatt undirlag og innstungu innan seilingar.

Grindin er úr álprófílum og hurðin úr 10 mm hertu öryggisgleri með öryggisfilmu. Veggplöturnar eru úr MDF með hljóðdempandi lagi úr pólýesterþráðum, og gólfið úr spónaplötu.

Tveggja ára ábyrgð gegn framleiðslugöllum frá afhendingu.

Já. Þú getur valið milli kortagreiðslu og rafræns reiknings með kröfu í heimabanka. Báðar leiðir í gegnum vefinn.

Spurningar um Duo?

Við förum yfir rýmið, aðgengið og uppsetninguna með þér.